Viðskipti innlent

Hefja lagningu gufulagnar á næstu vikum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér er horft í suðausturátt til Hverahlíðar og Skálafells. Suðurlandsvegurinn er í forgrunni og sjást vegamót hans og Gígahnúksvegar rétt vinstra megin við miðja mynd. Hægra megin Suðurlandsvegar er gamli þjóðvegurinn yfir Hellisheiði og vetrarvegur sem einnig liggur samhliða Suðurlandsvegi á kafla. Lögnin liggur undir þá alla í stokki.
Hér er horft í suðausturátt til Hverahlíðar og Skálafells. Suðurlandsvegurinn er í forgrunni og sjást vegamót hans og Gígahnúksvegar rétt vinstra megin við miðja mynd. Hægra megin Suðurlandsvegar er gamli þjóðvegurinn yfir Hellisheiði og vetrarvegur sem einnig liggur samhliða Suðurlandsvegi á kafla. Lögnin liggur undir þá alla í stokki. mynd/OR
Lagning gufulagnar sem tengir jarðhitasvæðið í Hverahlíð á Hellisheiði við Hellisheiðarvirkjun hefst á næstu vikum.

Tilboð í lagningu gufulagnar, sem verður um 5 kílómetra löng, hafa verið opnuð og hljóðaði lægsta tilboð upp á tæpa 2,5 milljarða króna. Leyfi fyrir framkvæmdinni liggja fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orku Náttúrunnar.

Þar kemur fram að leið lagnarinnar hafi verið valin með tilliti til þess að hún yrði sem minnst sýnileg frá þjóðveginum og sem minnst rask yrði.

Þá mun vera lagt kapp á að svæðið geti nýst áfram til útivistar. Þannig verður hægt að komast yfir nýju lögnina á fimm stöðum.

Skiltum með upplýsingum um hvar hægt verður að komast yfir lögnina ásamt merktum gönguleiðum á svæðinu verður komið fyrir á völdum stöðum, til dæmis á bílastæði við Hellisheiðarvirkjun, á bílastæði við gatnamót Suðurlandsvegar og Gígahnúksvegar og á áningarstað sem Orka náttúrunnar fyrirhugar að koma upp á móts við Gígahnúk.

Í tilkynningunni segir að taka eigi lögnina í notkun í árslok 2015 og á fullnaðarfrágangi að ljúka á árinu 2016. Framkvæmdir verða því að nokkru leyti samhliða framkvæmdum Vegagerðarinnar við breikkun Suðurlandsvegar á Hellisheiðinni, sem hófust nú í ár.

Nú er Vegagerðin að gera undirgöng undir Suðurlandsveginn fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi og samhliða mun Vegagerðin leggja steyptan stokk undir veginn fyrir gufulögnina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×