Afkoma MP banka neikvæð um 159 milljónir Stefán Árni Pálsson skrifar 4. september 2014 15:20 visir/arnaldur
Afkoma MP banka fyrstu sex mánuði ársins var neikvæð um 159 milljónir króna eftir skatta sem er bætt afkoma samanborið við seinni hluta árs 2013 en þá nam tap bankans tæpum milljarði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MP-banka. Þar kemur fram að afkoman á fyrri hluta árs 2014 litast af gjaldfærðum kostnaði vegna hagræðingaraðgerða sem nam um 100 milljónum króna. Þá var gengistap bankans um 50 milljónir króna á tímabilinu. Eigið fé bankans í lok júní 2014 nam 4.847 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall bankans hefur styrkst á fyrstu sex mánuðum ársins og var 15,1% í lok júní samanborið við 14,2% í árslok 2013. Hreinar vaxtatekjur námu 674 milljónum króna og drógust saman um 12% miðað við seinni hluta árs 2013 að teknu tilliti til vaxtaleiðréttingar. Í tilkynningunni segir að ástæðan sé minnkun útlánasafns. Vaxtamunur, reiknaður sem hlutfall af meðalstöðu heildareigna í upphafi og lok uppgjörstímabilsins var 2,4% sem er 0,2 prósentustigum lægra en á sama tímabili í fyrra. Útlán til viðskiptavina námu rúmum 23 milljörðum króna. Hlutfall 90 daga vanskila af útlánum í lok tímabils að teknu tilliti til sértækrar niðurfærslu nam 2,2%. Hlutfall áhættuveginna eigna af heildareignum var um 49% í lok tímabils. Þóknanatekjur námu 814 milljónum króna og jukust þær um 10% frá seinni hluta 2013 að teknu tilliti til árangurstengdra þóknana. Jákvæð þróun hefur verið í þóknanatekjum það sem af er ári og endurspeglast hún meðal annars í góðum árangri í fyrirtækjaráðgjöf og eignastýringu. Mikill vöxtur hefur verið hjá fyrirtækjaráðgjöf bankans og aukning eigna í stýringu hefur skilað auknum föstum þóknanatekjum. „Það má vel skipta þessu uppgjöri, og í raun starfsemi bankans á tímabilinu, í tvennt. Fyrri áætlunum sem miðuðu við aðgang að vaxtarfjármagni þurfti nauðsynlega að breyta þegar þær forsendur stóðust ekki. Það kom harðast niður á bankastarfseminni sem krefst mests eigin fjár,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka. Sigurður segir að þess vegna hafi þurft að stokka spilin uppá nýtt og endurskipuleggja rekstur. „Verulegur árangur náðist í þeirri endurskipulagningu þótt þar sé um krefjandi aðgerðir að ræða eins og fækkun stöðugilda um 30% ber vitni um. Salan á Lykli var hluti af þeirri endurskipulagningu, en hún gekk mjög vel fyrir sig. Kostnaður við hagræðingu nemur um 100 milljónum króna á fyrri hluta ársins. Kostnaðargrunnur bankans hefur hins vegar verið lækkaður verulega og mun það koma fram í bættri grunnafkomu eftirleiðis.“
Mest lesið Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Viðskipti innlent Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Viðskipti innlent Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Verðlagssæti Íslands enn eitt árið komi ekki á óvart Neytendur Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Atvinnulíf Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Sjá meira