Viðskipti innlent

Upplýsa ekki hversu margir hafa hætt viðskiptum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fréttastofa hefur fengið ábendingar um óánægða viðskiptavini sem vissu ekki af breytingunum
Fréttastofa hefur fengið ábendingar um óánægða viðskiptavini sem vissu ekki af breytingunum
MP banki vill ekki upplýsa hversu margir viðskiptavinir hafa flutt sig í annan banka í kjölfar umdeildra gjaldskrárbreytinga sem tóku gildi 1. ágúst.

Mánaðarlegt viðskiptagjald var 1.100 krónur en er nú 5.000 krónur. Til að sleppa við gjaldið þarf viðskiptavinur að eiga meira en tvær milljónir í bankanum.

Fréttastofa hefur fengið ábendingar um óánægða viðskiptavini sem vissu ekki af breytingunum, þ.á.m. er Ólafur Vigfússon en Facebook-færslu hans um málið má sjá hér að neðan.

Yfirmaður kynningarmála hjá MP banka, Hildur Þórisdóttir, segir það skrýtið ef að breytingarnar hafi farið framhjá fólki. Bankinn hafi sent út bréf í byrjun júní og svo tölvupósta þegar nær dró því að breytingarnar tækju gildi.

„Fólk var kannski í sumarfríi og þetta fór þess vegna framhjá einhverjum,“ segir Hildur. „Við höfum komið til móts við viðskiptavini sem hafa verið að flytja sig yfir í aðra banka og endurgreitt þeim þetta mánaðargjald.“

Hún segir að þessar róttæku breytingar hafi skilað því sem bankinn bjóst við; fjöldi þeirra sem hætt hafa í viðskiptum sé í takt við væntingar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×