Hagnaður Samherja tæpir 22 milljarðar Stefán Árni Pálsson skrifar 5. september 2014 13:31 Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Rekstrartekjur Samherja og dótturfélaga voru tæpir 90 milljarðar króna árið 2013 eins og árið áður. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 25,4 milljörðum króna, samanborið við 21,7 milljarða árið á undan. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samherja. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 25,5 milljörðum og að teknu tilliti til tekjuskatts var hagnaður ársins 21,9 milljarðar króna. Þetta mun vera fimmta árið í röð sem allar afkomueiningar samstæðunnar skila hagnaði. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar í lok ársins 2013 samtals 110,7 milljörðum króna. Heildarskuldir og skuldbindingar á sama tíma voru 45,9 milljarðar og bókfært eigið fé 64,8 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 58,5% í árslok. Veltufjármunir námu 40,8 milljörðum króna og nettóskuldir samstæðunnar voru jákvæðar sem nemur 6,1 milljarði króna. Skuldir við innlendar lánastofnanir námu um 22 milljörðum króna í árslok og hafa lækkað um tæpa 5 milljarða króna það sem af er árinu 2014. Skuldir við innlendar lánastofnanir hafa frá árslokum 2012 lækkað um ríflega 20 milljarða. „Rekstur okkar árið 2013 gekk að mörgu leyti vonum framar auk þess sem sala eigna hefur mikil áhrif á afkomuna sem er í heild mjög góð,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Hann segir að hins vegar séu alltaf blendnar tilfinningar þegar eignir séu seldar en á árinu voru eignir sem tengjast útgerð við Afríku og vörumerki seld og er þriðjungur hagnaðar ársins söluhagnaður vegna þess. „Við seldum góðar eignir sem búið var að leggja mikla vinnu í að breyta og bæta. Það er því alltaf ákveðin eftirsjá þegar horft er til baka og ekki síst í því góða fólki sem hafði tekið þátt í þessu með okkur. Efnahagur okkar og rekstur minnkaði umtalsvert í kjölfarið og verkefni okkar er að fylla í það skarð á næstu misserum.“
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira