Hagnaður SS jókst um 11% milli ára Haraldur Guðmundsson skrifar 22. ágúst 2014 14:41 Sláturfélagið er skráð á First-North markað Kauphallarinnar. Vísir/GVA
Hagnaður Sláturfélags Suðurlands (SS) á fyrri helmingi ársins nam 255 milljónum króna og jókst um tæp 11 prósent á milli ára. Í árshlutareikningi fyrirtækisins, sem samanstendur af reikningi SS og dótturfélagsins Reykjagarður hf., kemur fram að tekjur á fyrri árshelmingi námu 5,7 milljörðum króna og jukust um átta prósent milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBIDTA, var 532 milljónir en 524 milljónir á sama tíma 2013. „Gert er ráð fyrir áframhaldandi neikvæðum áhrifum af vaxandi innflutningi á kjöti á rekstur afurðahluta félagsins. Einnig ríkir nokkur óvissa með afsetningu á hluta kindakjötsafurða sem falla til í haust," segir í afkomutilkynningu SS. Þar segir einnig að aðalfundur félagsins hafi í mars síðastliðnum ákveðið að greiða 13,7 prósenta arð af B-deild stofnsjóðs, alls 25 milljónir. „Staða lykilvörumerkja félagsins í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum. Samt sem áður er reiknað með að erfiðar markaðsaðstæður á kjötmarkaði hafi neikvæð áhrif á afkomu kjötiðnaðar á síðari árshelmingi."
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira