Hagnaður HB Granda minnkaði um þriðjung Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. ágúst 2014 13:10 Frá skráningu HB Granda á aðallista Kauphallarinnar í apríl. vísir/stefán
Hagnaður HB Granda á fyrri helmingi ársins nam 10,6 milljónum evra, eða 1632 milljónum króna. Þetta kemur fram í árshlutareikningi sem var samþykktur á stjórnarfundi í morgun. Hagnaðurinn á fyrri helmingi ársins í fyrra nam hins vegar 2495 milljónum króna. Þetta þýðir að hagnaður HB Granda hefur lækkað um 863 milljónir króna eða um 34%. Hagnaðurinn nam 755 á öðrum ársfjórðungi en var 924 milljónir á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins 2014 námu 87,3 milljónir evra, samanborið við 99,3 milljónir evra árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 18,7 milljónir evra eða 21,4% af rekstrartekjum, en var 24,1 m€ eða 24,3% árið áður. Kolmunnavertíð á öðrum ársfjórðungi skilaði hærri tekjum en árið áður, segir í afkomutilkynningu en skip félagsins veiddu 41 þúsund tonn samanborið við 21 þúsund tonn árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 1,3 milljónir evra, en voru jákvæð um 2,9 milljónir á sama tíma árið áður. Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 1,8 milljónir evra, en voru neikvæð um 1,5 milljónir árið áður. Arion banki annaðist hlutafjárútboð á hlutum í félaginu sem lauk þann 10. apríl síðastliðinn. Vogun hf., Arion banki hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. seldu 25,4% af eignarhlut sínum til 2.500 hluthafa. Í kjölfar útboðsins voru hlutabréf félagsins tekin til skráningar á NASDAQ OMX þann 25. apríl 2014. Markaðsvirði félagsins í lok annars ársfjórðungs var 51,9 milljarðar króna og lokagengi hlutabréfa var 28,5. Hluthafar voru 2.392 í lok ársfjórðungsins.
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Stofnuðu nýtt félag þegar þeir sáu í hvað stefndi hjá Capacent Viðskipti innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Innkalla kerti vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent