CCP tapar 2,7 milljörðum króna Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. ágúst 2014 11:10 Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP.
Tap tölvuleikjaframleiðandans CCP eftir skatta nam 22,8 milljónum Bandaríkjadala á fyrri helmingi ársins, eða 2690 milljónum króna. Hagnaður í fyrra nam 318 þúsund dölum eða 37 milljónum króna. Tekjur fyrstu sex mánuði ársins námu 36,5 milljónum Bandaríkjadala, samanber 36,7 milljónir dala á sama tímabil ársins 2013. Félagið skilaði 4,5 milljónum dala í EBITDA hagnað á fyrstu sex mánuðum ársins sem er lækkun úr 8,3 milljónum miðað við sama tímabil 2013. „Niðurfærslan á þróunarkostnaði, sem nemur alls 24 milljónum Bandaríkjadala án skattaáhrifa, er langstærsti þátturinn í því að félagið skilar tapi á tímabilinu upp á 22,8 milljón Bandaríkjadala," segir í afkomutilkynningu CCP. „Stöðugar tekjur og framlegð félagsins á milli ára sýna að kjarnastarfsemi okkar, útgáfa og þróun á tölvuleiknum EVE Online, er áfram sterk. Í apríl tókum við þá erfiðu ákvörðun að hætta þróun á tölvuleiknum World of Darkness og einbeita okkur að því markmiði að þróa leiki fyrir einn og sama leikjaheiminn; EVE leikjaveröldina," segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, í tilkynningunni. Sem hluti af áætlunum okkar að sameina og einfalda starfsemi okkar á lykilstarfsstöðvum fyrirtækisins, munum við á næstunni kveðja tvo af stjórnendum fyrirtækisins. Joe Gallo og David Reid unnu frábært starf fyrir CCP og ég óska þeim all hins besta á nýjum vettvangi,” segir Hilmar.
Mest lesið Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Viðskipti innlent Verðlagssæti Íslands enn eitt árið komi ekki á óvart Neytendur Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Atvinnulíf Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Neytendur „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Viðskipti innlent Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli Atvinnulíf Fleiri fréttir Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Sjá meira