Eigið fé OR hefur tvöfaldast Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. ágúst 2014 11:40 Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.
Eigið fé Orkuveitu Reykjavikur hefur tvöfaldast frá árinu 2009 og nemur nú 83,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri fyrirtækisins sem staðfest var af stjórn og forstjóra í morgun. Hagnaður Orkuveitusamstæðunnar á fyrri helmingi ársins nam 3,8 milljörðum króna og rekstrar-hagnaður (EBIT) var 7,5 milljarðar króna. Sterkasti áhrifaþáttur fjárhagsáætlunar Orkuveitu Reykjavíkur er Aðgerðaáætlun OR og eigenda – Planið – sem samþykkt var í mars 2011. Planið var gert til tæplega sex ára og gildir út árið 2016. Markmið þess var að skila samstæðunni liðlega 50 milljarða króna betri sjóðstöðu, fyrst og fremst með sparnaði í rekstri, en einnig með eignasölu, láni frá eigendum og auknum tekjum. Um mitt ár 2014, þegar tímabil Plansins var liðlega hálfnað, áttu aðgerðirnar að hafa skilað 39,8 milljörðum króna. Niðurstaðan er hinsvegar 46,4 milljarðar sem er 17% umfram markmið. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að áfram verði unnið eftir Planinu til ársloka 2016.Aðhald skilar árangri Í tilkynningunni segir jafnframt að bætta afkomu Orkuveitunnar undanfarin ár megi ekki síst rekja til þess að tekist hefur að lækka útgjöld verulega að raungildi meðan tekjur hafa vaxið. Frá 2010 hafa tekjur á fyrri hluta árs vaxið um u.þ.b. 40%. Tveir áfangar við Hellisheiðarvirkjun hafa verið teknir í notkun á þessu tímabili. Tekjur samstæðu Orkuveitunnar minnka frá fyrri hluta árs 2013 og er helsta ástæða þess lágt álverð, sem dregur úr tekjum af raforkusölu. Þá segir í tilkynningunni að álverð hefur hækkað nokkuð frá uppgjörsdegi og því sé ekki útilokað að tekjur af raforkusölu rétti úr kútnum áður en árið er úti. Verulegur árangur hafi náðst í að verja rekstur Orkuveitunnar fyrir sveiflum í álverði, vöxtum og gengi með samningum við erlendar fjármálastofnanir. Mynd/AÐSEND
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira