Viðskipti innlent

Hyggjast selja 37% hlut í Bakkavör

Randver Kári Randversson skrifar
Arion banki hyggst selja 25% hlut sinn í Bakkavör, samkvæmt heimildum Sky-fréttastofunnar.
Arion banki hyggst selja 25% hlut sinn í Bakkavör, samkvæmt heimildum Sky-fréttastofunnar.
Samkvæmt heimildum Sky News hyggjast Arion banki, og lífeyrissjóðirnir Gildi og Lífeyrissjóður verslunarmanna selja samtals 37% eignarhlut sinn í Bakkavör. Ágúst og Lýður Guðmundssynir hyggjast ekki selja sinn hlut í fyrirtækinu.

Í frétt á vef Sky News kemur fram að Arion banki hyggist selja 25% hlut sinn í Bakkavör og að Lífeyrissjóðurinn Gildi og Lífeyrissjóður verslunarmanna hyggist selja 12% hlut sinn í fyrirtækinu. Einnig kemur fram að breska bankanum  Barclays verði falið að annast söluna.

Þá kemur fram að Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, sem stofnuðu fyrirtækið fyrir um aldarfjórðungi, ætli ekki að selja 39% hlut sinn í Bakkavör, en talsmaður Bakkavarar hafi ekki viljað tjá sig um málið.

Bakkavör selur tilbúna rétti í stórmarkaði á borð við Marks & Spencer, Tesco og Waitrose og vinna um 16000 manns hjá fyrirtækinu í Bretlandi. Hagnaður Bakkavarar á síðasta ári var um 115 milljónir punda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×