Heilsa

Ljúffeng og næringarrík möndlumjólk

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Möndlur eru stútfullar af vítamínum og steinefnum. Þær innihalda  til dæmis kalk, E vítamín, magnesíum og B2 vítamín en það eru mikilvæg næringarefni fyrir líkamann. Þær eru ríkar af trefjum, innihalda holla og góða fitu og eru auk þess mjög próteinríkar.

Möndlumjólk er ekki bara næringarrík heldur einnig afar bragðgóð. Tilvalið er að nota hana úti í drykki og í ýmislegt annað, hún er góður kalkgjafi í staðinn fyrir hefðbundna mjólk.

Heimatilbúin möndlumjólk er yfirleitt hollust, en í aðkeyptri möndlumjólk er oft viðbættur sykur og önnur aukaefni. Það er líka afar einfalt og fljólegt að búa hana til sjálfur

Það sem þarf í möndlumjólkina:

1 bolli af möndlum

Vatn

Sía, sigti eða nælonsokkur

Flaska fyrir mjólkina

Aðferð:

1.
Leggið möndlurnar í bleyti í minnst 15 mínútur, mega liggja í bleyti yfir nótt.

2.Hellið vatninu af og skolið möndlurnar með hreinu vatni.

3.Setjið möndlurnar í blandara ásamt 4 bollum af vatni og blandið vel saman.

4.Hellið möndlumjólkinni í gegnum sigti eða einhverskonar síu og í hreina flösku sem hægt er að geyma í kæli.

Möndlumjólkin geymist í 2-3 daga í kæli. Ekki henda hratinu af möndlunum, frystu það frekar eða þurkaðu það í ofninum.  Möndluhratið er mjög gott í bakstur og ýmislegt fleira.








×