Viðskipti innlent

Foss distillery ætlar í útflutning til Bandaríkjanna

Haraldur Guðmundsson skrifar
Björk og Birkir eru unnin úr íslensku birki og birkisafa.
Björk og Birkir eru unnin úr íslensku birki og birkisafa. Mynd/Foss distillery
Fyrirtækið Foss distillery, sem framleiðir líkjörinn Björk og snafsinn Birki, ætlar í útflutning á vörunum til Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þar segir að öll tilskylin leyfi séu í höfn og að undirbúningur á fyrstu sendingu á vörunum sé á lokastigi. Stefnt sé á að vörurnar verði komnar í dreifingu í Bandaríkjunum í byrjun október. Bandaríska fyrirtækið Vendetta Spirits, sem er staðsett í New Orleans, mun annast alla sölu- og markaðssetnignu á vörunum.Vörurnar fást nú þegar í Danmörku og fyrirtækið segir samninga við fleiri dreifingaraðila í Evrópu í vinnslu.

„Vendetta Spirits hefur sérhæft sig í framleiðslu og innflutningi til Bandaríkjanna á líkjörum og snöfsum frá minni framleiðendum sem eru staðsettir út um allan heim. Avery Glasser, eigandi og stofnandi Vendetta Spirits, hefur sérhæft sig í þróun á vörum fyrir hinn gríðarstóra og krefjandi kokteilheim Bandaríkjanna og hefur sérlegan áhuga á vörum Foss distillery. Fleiri vörur eru nú þegar á teikniborðinu í samstarfi við Vendetta Spirits og því spennandi tímar framundan," segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×