Viðskipti innlent

Borg brugghús fékk fern verðlaun

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd af Facebook síðu Borgar Brugghúss.
Borg brugghús vann til fjögurra verðlauna á Global Craft Beer verðlaunahátíðinni. Þar kepptu 69 brugghús með rúmlega 200 bjóra.

Bríó fékk gullverðlaun í Pilsner flokki. Garún fékk einnig gullverðlaun í flokkinum Imperial stout og Úlfur fékk sömuleiðis gullverðlaun í Indian pale ale flokkinum. Þar að auki fékk Myrkvi silfurverðlaun í súkkulaði og kaffiflokkinum.

Í tilkynningu frá brugghúsinu segir að frá stofnun þess árið 2010 hafi bjórar þess unnið til nokkurra alþjóðlegra verðlauna. Þá sé Bríó kominn á markað í Kanada og Garún í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×