Veltir því upp hvort útgerðin eigi að sinna rannsóknunum Haraldur Guðmundsson skrifar 20. ágúst 2014 07:30 Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ. Vísir/Arnþór.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍU, segir í aðsendri grein í Markaðinum í dag að sú spurning vakni hvort haf- og fiskirannsóknum á Íslandsmiðum gæti verið betur komið á hendi sjávarútvegsfyrirtækjanna sjálfra gegn lækkun veiðigjalda. Þar segir hann að Hafrannsóknastofnun fái meðal annars ekki fjármuni til að fara í árlega haustmælingu á loðnustofninum og mæling á honum muni því ekki fara fram fyrr en eftir áramót. Það auki líkurnar á því að mælingin heppnist ekki sem skyldi með þeim afleiðingum að kvótaaukning upp á ríflega 200 þúsund tonn verði ekki gefin út. „Til að varpa ljósi á hagsmuni málsins má ætla að útflutningsverðmæti 200 þúsund tonna af loðnu sé ekki undir 12 milljörðum króna í gjaldeyristekjum. Til hliðsjónar má ætla að loðnuleiðangur Hafró kosti um 60-70 milljónir króna," segir Kolbeinn. Hann segir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa greitt 9,7 milljarða króna í ríkissjóð í formi veiðigjalda. Fyrirtækin greiði auk þessa mun hærri fjárhæðir í gegnum hið hefðbundna skattkerfi. „Árið 2013 nam kostnaður við rekstur Hafrannsóknastofnunar 1.581 milljónum króna og rekstur Fiskistofu 839 milljónum. Það liggur því fyrir að veiðigjöldin ein og sér standa meira en ríflega undir kostnaði ríkisins af rannsóknum, stjórn og eftirliti vegna sjávarútvegs í landinu. Samt virðast ekki til fjármunir til að standa að allra nauðsynlegustu rannsóknum sem þarf til að hægt sé að nýta auðlindina með ábyrgum hætti," segir Kolbeinn.
Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira