Viðskipti innlent

Skeljungur opnaði metandælu við Miklubraut

Samúel Karl Ólason skrifar
Aðsend mynd
Skeljungur opnaði formlega í gær nýja metandælu á Orkustöðinni við Miklubraut. Einnig opnaði fyrirtækið hraðhleðslustöð fyrir rafmagnsbíla á Shell stöðinni við Miklubraut.

„Það er ánægjulegt að geta aukið þjónustu við bæði metanbílaeigendur og rafbílaeigendur. Með þessu höfum við einnig náð að auka vöruframboð á íslensku vistvænu eldsneyti. Við viljum geta boðið viðskiptavinum okkar sem flesta valkosti og það er ánægjulegt að geta haft þá valkosti endurnýjanlega og vistvæna ,“ segir Valgeir Baldursson forstjóri Skeljungs í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Í Fréttablaðinu í dag segir að metandælurnar hafi verið opnaðar á bensínstöð ÓB við miklubraut. Það er hinsvegar ekki rétt.

Metanið á nýju dælunni kemur frá Sorpu og byggir alfarið á endurnýjanlegri orku. Úr lífrænum úrgangi annars vegar og hins vegar á raforku frá Landsneti, sem framleidd er með virkjun fallvatna.

Skeljungur hóf í lok árs 2013 sölu á lífdísilolíu og uppfyllir ákvæði laga um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi um 3,5% hlutfall endurnýjanlegs orkuinnihalds.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×