Bryan Adams segir ótrúlegt að Ísland eigi svona demant Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. ágúst 2014 23:20 Bryan Adams á tónleikunum í Hörpu í kvöld. Mynd/Sigríður Atladóttir
Rokkarinn Bryan Adams fór á kostum á fyrri tónleikum sínum í Eldborgarsal Hörpu í kvöld samkvæmt þeim tónleikagestum sem Vísir hefur heyrt hljóðið í. Kanadíski hjartaknúsarinn var sérstaklega ánægður með hljóminn í Hörpu. Hafði hann á orði að hann væri búinn að ferðast um allan heim á tónleikaferðalagi sínu en tvö tónleikahús bæru af. Annars vegar sjálft óperuhúsið í Sydney og hins vegar Harpa. Bætti hann við að það væri með ólíkindum að svo fámenn þjóð ætti „svona demant“. Hvort Adams hafi átt við glæsileika húsanna eða hljómburðinn skal ósagt látið. Óperuhúsið í Sydney hefur löngum verið lofað fyrir glæsileika á meðan fólk hefur keppst við að gagnrýna hljómburðinn í því. Leikarinn John Malkovich svaraði gagnrýni á eigin frammistöðu í húsinu á dögunum á þann veg að hljómburðurinn í húsinu væri verri en í flugskýli. Adams er á ferðalagi um heiminn ásamt píanóleikara á svokölluðum Bare Bones-túr. Njóta áhorfendur mikillar nálægðar við söngvarann á tónleikunum þar sem hann spjallar við fólk sem biður jafnvel um óskalög á tónleikunum. Svo vel seldist á tónleikana í kvöld að blásið var til aukatónleika sem fram fara annað kvöld. Uppselt er á aukatónleikana.Frá tónleikunum í Eldborg í kvöld.Vísir/JKJBryan Adams og Eldborgarsalurinn í Hörpu.Vísir/Getty
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira