Atvinnuleysi lækkar um 1,8% frá sama tíma í fyrra Randver Kári Randversson skrifar 24. júlí 2014 15:20 Áfram dregur úr atvinnuleysi og kaupmáttur launa eykst. Vísir/Vilhelm
Í vikunni birtust þrjár tölur um vinnumarkaðinn á Íslandi. Hagstofan og Vinnumálastofnun birtu atvinnuleysistölur og Hagstofan birti einnig launavísitölu júnímánaðar. Í Hagsjá Landsbankans kemur fam að tölurnar sýna allar að vinnumarkaðurinn er á réttri leið, atvinnuleysi lækkar og laun hækka. Á sama tíma er verðbólgan lág og því hefur kaupmáttur launa aukist. Atvinnuleysi á mælikvarða Hagstofunnar (úrtakskönnun) var 4,6% í júní samanborið við 7,1% í maí, mikil sveifla er í tölum Hagstofunnar og því betra að skoða lengri tímabil og meðaltöl. Í júní 2013 mældist atvinnuleysið 6,4%, það hefur því lækkað um 1,8 prósentustig milli ára. Samkvæmt tölum VMST var atvinnuleysið 3,2% í júní og lækkaði um 0,4% frá mánuðinum á undan. Í júní 2013 var atvinnuleysið 3,9% og hefur það því lækkað um 0,7 prósentur milli ára. Sé horft á 12 mánaða meðaltal er atvinnuleysið einni prósentu lægra á þann mælikvarða en það var fyrir ári síðan. Launavísitalan hækkaði um 0,5% milli mánaða í júní. Launavísitalan hefur því hækkað um 4,1% á þessu ári og um 5,4% frá sama mánuði árið áður. Verðbólgan hefur verið lág að undanförnu, það veldur því að launahækkanir skila sér frekar í auknum kaupmætti. Kaupmáttur launa hefur aukist um 3,1% á árinu 2014, sem verður að teljast nokkuð mikil hækkun. Kaupmáttur launa er nú á svipuðum stað og hann var undir lok árs 2006.
Mest lesið Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Sjá meira