Nýi Billy passar ekki með þeim gamla Atli Ísleifsson skrifar 15. júlí 2014 07:00 Alls hefur IKEA selt fleiri en 50 milljónir Billy bókaskápa frá því að sala á honum hófst árið 1978. Vísir/Vilhelm
Sænski húsgagnarisinn IKEA hefur kynnt nýja Billy bókaskápa til sögunnar. Breytingarnar fela meðal annars í sér að götin til að festa hillur og hurðir eru minni en í gömlu útgáfunni og eru þær festar á annan hátt. Því er ekki hægt að nýta færanlegar hillur úr gömlum skápum í nýju útgáfunni. Atli Már Daðason, vörustjóri hjá IKEA á Íslandi, segir í samtali við Vísi að IKEA hafi með breytingunum verið að gera Billy betri. „Það er eins og almennt er í vöruþróun. Vörur verða betri og einfaldari í framleiðslu.“ Hann segir að með breytingunum sé einnig verið að uppfæra liti. „Hvíti liturinn er orðinn hvítari til að samræmast öðrum vörulínum sem við erum að selja.“ Þá sé viðaráferðin öðruvísi. „Maður fær alvöru viðartilfinningu þegar maður kemur við skápinn.“ Atli Már segir að borunin þar sem maður setur annað hvort hillur eða hurðir hafi einnig verið breytt. „Möguleikarnir hafa aukist varðandi það hvar þú staðsetur hillur og hurðir. Ef þú ert að kaupa nýjar hurðir þá ganga þær hins vegar illa í gamla Billy bókaskápa. Þessi nýja borun er gerð til að auka sveigjanleika fyrir viðskiptavini – hvar þeir staðsetja hillur og hurðir.“ Atli Már segir því ekki hægt að nota gamlar hillur í nýja skápnum. „Þá er líka hætta á þessum litamun, sérstaklega í hvíta skápnum.“ Daniela Rogosic, fjölmiðlafulltrúa IKEA í Svíþjóð, segir gömlu og nýju skápana þó vera af sömu stærð og því vel geta staðið saman. Í viðtali við Dagens Nyheter segir Daniela að nýjar vörur IKEA fái stundum mikil viðbrögð frá viðskiptavinum og að stjórnendur fyrirtækisins hafi einnig hugað að mögulegum viðbrögðum í þessu tilviki. „Breytingin ætti þó ekki fela í sér einhver stærri vandamál fyrir þá sem eiga skápana heima. Þetta eru breytingar sem viðskiptavinir hafa óskað eftir.“ Að sögn Atla Más hafa nýju skáparnir verið að týnast inn í verslunina hér á landi síðan í byrjun júní. Hann segist ekki hafa orðið var við óánægju meðal viðskiptavina vegna breytinganna á Billy. Óhætt er að segja að Billy bókaskápurinn hafi farið sigurför um heiminn frá því að hann var fyrst kynntur til sögunnar. Í frétt DN segir að alls hafi yfir 50 milljónir Billy bókaskápa selst frá því að IKEA hóf sölu á honum árið 1978.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira