Viðskipti innlent

Arion banki selur skuldabréf fyrir tíu milljarða

Bjarki Ármannsson skrifar
Arion banki hf. seldi í dag sértryggð skuldabréf til fagfjárfesta fyrir tíu milljarða króna að nafnvirði.
Arion banki hf. seldi í dag sértryggð skuldabréf til fagfjárfesta fyrir tíu milljarða króna að nafnvirði. Vísir/Pjetur
Arion banki hf. seldi í dag sértryggð skuldabréf til fagfjárfesta fyrir tíu milljarða króna að nafnvirði. Jafnframt keypti bankinn samningsbundin sértryggð skuldabréf fyrir samtals tæplega nítján milljarða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Skuldabréfin sem bankinn seldi eru í flokki ARION CB 15. Samkvæmt upplýsingum frá samskiptasviði Arion banka er stærð flokksins nú 14,3 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×