Viðskipti innlent

Bjóða ótakmarkað gagnamagn með ADSL

Stefán Árni Pálsson skrifar
Játvarður Jökull Ingvarsson, framkvæmdastjóri Hringdu.
Játvarður Jökull Ingvarsson, framkvæmdastjóri Hringdu.
Fjarskiptafyrirtækið Hringdu hefur ákveðið bjóða viðskiptavinum sínum upp á ótakmarkað gagnamagn frá og með deginum í dag en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Síminn tilkynnti á dögunum að frá og með 1. september hyggist hann rukka viðskiptavini sína fyrir alla internetnotkun, bæði innlenda og erlenda, upp- og niðurhal.

Fram kemur í fréttatilkynningunni frá Hringdu ehf. að fyrirtækið hafi lýst því yfir að þessi tilhögun Símans sé slæm fyrir neytendur og að breytingarnar bæði dragi úr gegnsæi og opni á frekari gjaldskrárhækkanir á fjarskiptamarkaði.

„Með ótakmörkuðu gagnamagni þurfa notendur nú ekki lengur að velta fyrir sér hvort þeir séu að sækja eða senda frá sér of mikið af gögnum, og hvort gögnin séu erlendis eða innanlands,“ segir í tilkynningunni.

„Við erum ánægð með að hafa stigið þetta skref. Síminn hefur sennilega búist við að hin fjarskiptafyrirtækin færu að fordæmi þeirra, en við teljum að neytendur taki þessum möguleika fagnandi,” segir Játvarður Jökull Ingvarsson, framkvæmdastjóri Hringdu.

„Ótakmarkað gagnamagn verður í boði fyrir ADSL tengingar frá og með deginum í dag, og innan skamms verður þjónustan einnig fáanleg fyrir notendur með Ljósnets- og ljósleiðaratengingar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×