Viðskipti innlent

Skúli og stjórnendur Kaupþings ákærð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vinstri: Skúli Þorvaldsson, Magnús Guðmundsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Guðný Arna Sveinsdóttir.
Frá vinstri: Skúli Þorvaldsson, Magnús Guðmundsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Guðný Arna Sveinsdóttir. Vísir/GVA
Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings og einum af helstu viðskiptavinum bankans, Skúla Þorvaldssyni. RÚV greindi fyrst frá í dag.

Ákæran snýst um viðskipti félags eða félaga Skúla við Kaupþing á Íslandi og í Lúxemborg. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings,  Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, eru ákærð.

Ákærðu hefur ekki verið birt ákæran samkvæmt heimildum Vísis. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×