Aldrei fleiri erlendir ferðamenn verið á Íslandi Samúel Karl Ólason skrifar 2. júlí 2014 17:44 Vísir/Daníel
Um 110.600 erlendir ferðamenn fóru frá Íslandi í júní. Það eru um 20.700 fleiri en í júní í fyrra og nemur aukningin 23,1 prósenti á milli ára. Aldrei áður hafa jafn margir ferðamenn verið hér á landi í júní. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu voru Bandaríkjamenn fjölmennastir þeirra sem komu hingað til lands í maí, eða 19,2 prósent. Þjóðverðar voru næstflestir eða 15,6 prósent. Þar á eftir komu Bretar, 8,6 prósent, Frakkar, 6,4 prósent og Norðmenn, 5,7 prósent. Samtals voru 10 fjölmennustu þjóðernin með 74% af heildarfjölda ferðamanna. „Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bretum, Kanamönnum, Þjóðverjum og Kínverjum mest á milli ára. Þessar fimm þjóðir báru að stórum hluta uppi aukninguna í júní milli ára eða um 54% af heildaraukningu,“ segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Þreföldun á tólf árum Ferðamönnum hafði fjölgað um rúmlega þriðjung í maí í ár, samanborið við maí árið 2002. „Fjölgun hefur að segja má verið öll ár, að undanskilinni smávægilegri fækkun 2009 og 2010. Fjölgunin hefur þó verið mismikil, mest 25% á milli áranna 2006 og 2007 og þrívegis yfir 20%.“ Á þessu ári hafa 401.772 erlendir ferðamenn farið frá Íslandi sem er um 90 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Það samsvarar 29 prósent aukningu ferðamanna á á milli tímabila. Um 41 þúsund Íslendingar fóru frá landi í júní, sem er um 4.900 fleiri en í júní í fyrra. Frá áramótum hafa 184.820 farið út, en það samsvarar 8,5 prósent aukningu.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira