Viðskipti innlent

Vöruskipti í júní óhagstæð

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/GVA
Bráðabirgðatölur sýna að útflutningur í júní nam 40,7 milljörðum króna. Hagstofan greinir frá þessu.

Þá nam innflutningur 48,4 milljörðum króna í júní.

Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Með fob-verði (free on board) er átt við verð vörunnar komið um borð í flutningsfar í útflutningslandi.

Mynd/Hagstofan





Fleiri fréttir

Sjá meira


×