Bílaleigan Enterprise til Íslands Stefán Árni Pálsson skrifar 3. júlí 2014 13:44 Merki Enterprise mun verða sýnilegt víða um land á næstu mánuðum. visir/daníel
Alþjóðlega bílaleigufyrirtækið Enterprise hefur útnefnt Bílaleigu Kynnisferða umboðsaðila sinn á Íslandi og bætir þar með vinsælum evrópskum áfangastað við sína starfsemi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Kynnisferðum. Í kjölfar samningsins mun merki Enterprise verða sýnilegt víða um land á næstu mánuðum enda er það stefna Enterprise að skapa alþjóðlegt vörumerki sem stendur fyrir framúrskarandi þjónustu við fólk í vinnu- og frístundaferðum. Kynnisferðir - Reykjavik Excursions er eitt af stærstu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins og hóf rekstur eigin bílaleigu árið 2013. Fyrirtækið er eitt elsta og rótgrónasta fólksflutningafyrirtæki landsins og hefur frá upphafi verið í fararbroddi í skipulögðum dagsferðum með erlenda ferðamenn um Ísland. „Ísland er vinsæll áfangastaður og það er kappsmál okkar að viðskiptavinir Enterprise um heim allan geti leigt bíla af fyrirtækinu hvert sem þeir ferðast.“ segir Peter Smith, aðstoðarforstjóri sérleyfasviðs Enterprise. „Ég hlakka til samstarfsins við Kynnisferðir - Reykjavik Excursions sem er þrautreynt fyrirtæki með sömu hugsjón og við, að lykillinn að velgengi sé góð þjónusta við viðskiptavininn.“ „Samstarfið við Enterprise er kjörið tækifæri til að byggja upp stórt og öflugt fyrirtæki en bílaleiga verður sífellt mikilvægari þáttur ferðaþjónustunnar. Ísland er heillandi áfangastaður þeirra sem vilja sjá og upplifa eitthvað nýtt á ferðalögum sínum. Leiga á bíl eykur frelsi ferðafólks og auðvelda því að upplifa og njóta íslenskrar náttúru,“ segir Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða - Reykjavik Excursions og nú Enterprise Iceland. Enterprise starfar nú í Austurríki, Belgíu, Bosníu-Hersegóvínu, Búlgaríu, Króatíu, Kýpur, Tékklandi, Frakklandi, Þýskalandi, Grikklandi, Ungverjalandi, Írlandi, Ítalíu, Makedóníu, Hollandi, Portúgal, Slóvakíu, Spáni og Bretlandi. Á næstu mánuðum mun fyrirtækið opna útibúi í fleiri löndum Evrópu.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira