Viðskipti innlent

Framleiðsluverð hækkar um 1,7% milli mánaða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísitala framleiðsluverðs í maí 2014 var 197,9 stig og hækkaði um 1,7% frá apríl 2014 en þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 250,6 stig, sem er hækkun um 0,5% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 192,0 stig, hækkaði um 7,3%. Vísitalan fyrir matvæli stendur í stað milli mánaða og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 5,1%.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,9% milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um 2,9%.

Miðað við maí 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 2,2% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 1,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 8,3% en matvælaverð hefur hækkað um 1,7%.

mynd/hagstofa íslands





Fleiri fréttir

Sjá meira


×