Viðskipti innlent

Flybe lendir á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flybe hóf áætlunarflug sitt til Íslands í gær þegar fyrsta þota félagsins lenti í Keflavík en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Flugin munu tengja Birmingham beint við Keflavík og mun Flybe fljúga þrisvar í viku til Íslands frá Birmingham. Flogið verður á sunnudögum, þriðjudögum og föstudögum.

Í tilefni af fyrsta fluginu var tekið á móti flugvélinni samkvæmt alþjóðahefð með vatnsboga. Á meðal farþega var hópur þekktra breskra blaðamanna, ásamt flugleiðastjóra Flybe, Fred Kochak.

„Breskir ferðamenn heimsækja Ísland í síauknum mæli. Þeir koma til að njóta alls hins stórkostlega sem Ísland hefur upp á að bjóða, allt árið um kring. Áætlunarflug Flybe er enn eitt dæmi um vaxandi tengsl landanna tveggja. Ég óska flugfélaginu til hamingju með að bjóða upp á allra nýjustu flugleiðina til Íslands. Nú er hægt að fljúga til Reykjavíkur frá átta breskum þéttbýlisstöðum,“ segir Stuart Gill, sendiherra Bretlands á Íslands sem tók á móti farþegunum í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×