"Þetta er stærsti fiskur sem veiðst hefur í sumar“ Jakob Bjarnar skrifar 20. júní 2014 11:22 Dagur með feng sinn ásamt Ásgeiri Heiðari. Mynd/SVFR
Dagur B. Eggertsson, nýkjörinn borgarstjóri, nældi í fyrsta laxinn þegar opnað var fyrir veiði í Elliðaánum í morgun. „Það er víst ekki mikið af laxi í ánni. Við laumuðust aftan að þessum í Teljarstreng Eftir smá nart í tveimur tilraunum þar sem hann hálfslapp þá sat hann á,“ sagði Dagur í hádegisfréttum Bylgjunnar. Á heimasíðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur kemur fram að laxinn hafi verið í smærri kantinum en hann mældist 57 cm. „Þetta er stærsti fiskur sem veiðst hefur í sumar,“ sagði Dagur og hló. „Mér var kennt að segja að hann væri mjög fallegur.“ Gunnar og Kristján Jónassynir, kaupmenn og eigendur verslunarinnar Kjötborgar við Ásvallagötu voru kjörnir Reykvíkingar ársins. Þeir urðu frá að hverfa með með öngulinn í rassinum. „Að sinni já. Þeir stóðu sig mjög vel og virkilega gaman að vera með þeim í morgun.“ Auk dags voru Björn Blöndal, forseti borgarráðs og forystumenn Orkuveitu Reykjavíkur viðstaddir opnunina. Post by SVFR.
Stangveiði Tengdar fréttir Kjötborgarbræður Reykvíkingar ársins Kaupmennirnir Gunnar og Kristján Jónassynir voru kjörnir Reykvíkingar ársins og fengu þeir því að renna fyrir fyrsta laxinn. 20. júní 2014 09:31 Enginn lax kominn á land úr Elliðaánum Elliðaárnar opnuðu í morgun fyrir veiði í suddaveðri og síðustu fréttir herma að ekki hafi ennþá tekist að setja í lax. 20. júní 2014 09:00 Mest lesið Syðri Brú og sagan af Landaklöpp Veiði 108 sm tröll úr Haukadalsá síðasta veiðidaginn Veiði Fyrsti laxar sumarsins úr Ytri Rangá Veiði 15 laxar á fyrsta degi í Norðurá Veiði Hafrannsóknarstofnun hvetur veiðimenn til að sleppa laxi Veiði Lónsá er bleikjuperla á norðausturlandi Veiði Langskeggur er málið Veiði Spá að Miðfjarðará fari yfir 4.000 laxa Veiði Ágæt veiði í opnun Veiðivatna þrátt fyrir kulda og trekk Veiði Lokatölur komnar úr Norðurá Veiði
Kjötborgarbræður Reykvíkingar ársins Kaupmennirnir Gunnar og Kristján Jónassynir voru kjörnir Reykvíkingar ársins og fengu þeir því að renna fyrir fyrsta laxinn. 20. júní 2014 09:31
Enginn lax kominn á land úr Elliðaánum Elliðaárnar opnuðu í morgun fyrir veiði í suddaveðri og síðustu fréttir herma að ekki hafi ennþá tekist að setja í lax. 20. júní 2014 09:00