Viðskipti innlent

Straumur viðurkenndur ráðgjafi á First North

Haraldur Guðmundsson skrifar
Hlutverk viðurkennds ráðgjafa í Kauphöllinni felst einkum í að vera félögum til halds og trausts þegar skráningarferli stendur yfir.
Hlutverk viðurkennds ráðgjafa í Kauphöllinni felst einkum í að vera félögum til halds og trausts þegar skráningarferli stendur yfir. Vísir/Daníel
Straumur fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur fengið leyfi til að starfa sem viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser) á First North-markaði Kauphallarinnar.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu Kauphallarinnar (Nasdaq OMX Iceland). Þar segir að Straumur sé nú orðinn fullgildur ráðgjafi fyrirtækja við skráningu verðbréfa á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði First North.

„Við bjóðum Straum fjárfestingabanka velkominn á First North Iceland," segir Kristín Rafnar, forstöðumaður skráningarsviðs Kauphallarinnar í tilkynningunni.        

„Frekari uppbygging og efling hlutabréfamarkaðar á First North Iceland felur í sér ýmis tækifæri og við erum ánægð með að vera komin í hóp þeirra aðila sem eru viðurkenndir ráðgjafar á First North Iceland,” segir Páll Ragnar Jóhannesson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Straums.

Samkvæmt upplýsingum Kauphallarinna felst hlutverk viðurkennds ráðgjafa einkum í að vera félögum til halds og trausts þegar skráningarferli stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan verðbréf félags eru í viðskiptum. Það sé á ábyrgð viðurkennds ráðgjafa að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldu sem gildir á First North-markaðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×