Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fyrirtækja fækkar um 20%

Randver Kári Randversson skrifar
Flest gjaldþrot voru í mannvirkjagerð og byggingastarfsemi.
Flest gjaldþrot voru í mannvirkjagerð og byggingastarfsemi. Vísir/Vilhelm
Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá júní 2013 til maí 2014, hafa dregist saman um 20% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 837 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Flest gjaldþrot voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eða 157 talsins. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá júní 2013 til maí 2014, hefur fjölgað um 3% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 1.929 ný félög skráð á tímabilinu. Flestar nýskráningar voru í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, eða 310 talsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×