Viðskipti innlent

Vörukarfa ASÍ lækkar hjá Bónus, Hagkaup og Tíu-ellefu

Randver Kári Randversson skrifar
Vísir/Vilhelm
Vörukarfa ASÍ hefur lækkað hjá Bónus, Hagkaupum og Tíu-ellefu á milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í apríl og júní. Á þessu tæplega þriggja mánaða tímabili hækkaði vörkarfan hins vegar í verði hjá Krónunni, Nettó, Iceland, Nóatúni, Samkaupum-Úrvali, Samkaupum-Strax og Víði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

Mesta hækkunin er hjá Samkaupum-Strax um 1,4%.Miklar verðsveiflur eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum en mesta hækkunin er í sælgæti hjá Bónus um 6% og mesta lækkunin er í kjötvörum hjá Víði um 8,6%.

Eins og fyrr segir var hækkunin mest hjá Samkaupum-Strax (1,4%), Nóatún hækkaði um (0,6%), Iceland (0,5%), Krónan og Víðir um (0,2%), Nettó og Samkaup-Úrval (0,1%), en hjá Hagkaupum lækkaði verð vörukörfunnar um (0,9%) og Tíu-ellefu og Bónus um (1%).

Í lágvöruverðsverslununum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Iceland um 0,5%, en mest hækkaði  vöruflokkurinn grænmeti og ávextir um (2,1%) og kjötvörur um (1,5%). Hjá Bónus lækkar karfan um 1%, vegna mikillar lækkunar kjötvörum (5,4%) og ýmsum matvörum um (2,7%), en á móti hækkaði vöruflokkurinn sætindi um (6%) og grænmeti og ávextir um (2,8%).

Í stórmörkuðum og klukkubúðum skýrist hækkunin hjá Samkaupum-Strax einkum af hækkunum á grænmeti og ávöxtum (4,7%) og sætindum (4,4%) en brauð og kornvörur, kjötvörur og hreinlætis- og snyrtivörur hafa ekki breyst í verði milli mælinga. Hjá Nóatúni var mesta hækkunin á sætindum (2,7%) og kjötvörum (2,1%). Hjá Víði hækkaði vöruflokkurinn sætindi um (4%) en mikil lækkun var á kjötvörum (8,6%). Hjá Samkaupum-Úrval hækkuðu grænmeti og ávextir um (5,1%) en mest lækkuðu mjólkurvörur (1,9%). Verð vörukörfunnar hefur lækkað í verði hjá Hagkaupum um 0,9% en mesta lækkunin var á drykkjarvörum um (4,7%), vöruflokknum ýmsum matvörum um (3,8%) og hreinlætis-og snyrtivörum um (3,2%). Verðið á vörukörfunni í Tíu-ellefu hefur lækkað um 1%, mesta lækkunin var í hreinlætis-og snyrtivörum (3,2%) og grænmeti og ávöxtum (2,5%).

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara.

Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×