Harmageddon

Björn Jón Bragason kvartaði ekki yfir Secret Solstice

Frosti Logason skrifar
Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og framkvæmdastjóri, hefur vakið mikla athygli undanfarin ár fyrir harða gagnrýni á borgarstjórn Reykjavíkur. 

Hann hefur barist af krafti gegn því að Laugavegurinn sé gerður að göngugötu á sumrin og verið ötull talsmaður einkabílsins þegar hann hefur átt undir högg að sækja. 

Þegar mbl.is greindi frá því að einn íbúi í Laugardalnum hefði kvartað undan hávaða frá Secret Solstice tónlistarhátíðinni um síðustu helgi voru einhverjir sem töldu að þar hefði umræddur Björn Jón verið á ferð. 

Í fréttinni var greint frá því að Heilbrigðiseftirlitið hefði mætt á heimili íbú­ans laust eft­ir kl. 23 á föstu­dags­kvöld og mælt hávaðann í íbúðinni. Í svefn­her­bergi íbúðar­inn­ar, með lokuðum glugga, hafi hávaðinn mælst 39 desi­bel.

Tekið er fram að til sam­an­b­urðar megi nefna að hvísl er yf­ir­leitt um 20 desi­bel, um­hverf­is­hljóð á bóka­safni og fugla­söng­ur er um 40 desi­bel og sam­tal tveggja manna er um 60 desi­bel. 



Þrátt fyrir þetta sagði íbúinn:

„Við sem búum við og í ná­grenni dals­ins urðum fyr­ir mjög miklu ónæði vegna tón­leik­anna. Hávaðinn var ólýs­an­leg­ur, glugg­ar titruðu og húsið hrein­lega skalf. Það var ekki hægt að horfa á sjón­varp og við þurf­um að loka okk­ur inni á kló­setti til að geta talað í síma.“ 

Harmageddon sló á þráðinn til Björns Jóns í morgun og komst að því að hann hefði ekki verið umræddur íbúi. Björn viðurkenndi að eitthvað hefði heyrst frá hátíðinni heim til hans en það hefði ekki verið neitt til að kvarta yfir.

„Þetta var ekki það mikill háváði, það bara glumdi svolítið.“ sagði Björn Jón og bætti því við að hann teldi skipulag hátíðarinnar hafa verið til fyrirmyndar.

Hægt er að heyra spjallið hér.








×