Viðskipti innlent

Jákvæð tekjuafkoma hins opinbera

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/gva
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist jákvæð um 11 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2014, en það er mun hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2013 þegar hún var neikvæð um 3,5 milljarða króna. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.

Tekjuafgangurinn nam 2,5% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 5,1% af tekjum hins opinbera.

Heildartekjur hins opinbera jukust um 12,4% milli fyrsta ársfjórðungs 2013 og 2014.

Tekjuaukningin skýrist fyrst og fremst af arðgreiðslu Landsbankans til ríkissjóðs, sem nam 19,6 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×