Viðskipti innlent

Seldi í N1 fyrir 3,5 milljarða króna

Haraldur Guðmundsson skrifar
Eggert Benedikt Guðmundsson er forstjóri N1.
Eggert Benedikt Guðmundsson er forstjóri N1. Vísir/Valli
Framtakssjóður Íslands seldi í gær allt hlutafé sitt í olíufélaginu N1. Sjóðurinn átti 20,9 prósent í félaginu eða rúmlega 209 þúsund hluti. Bréfin voru seld á genginu 17 krónur á hlut og söluandvirðið nam því rúmum 3,5 milljörðum króna.

Frá þessu var greint í tilkynningu sjóðsins til Kauphallarinnar. Þar er ekki tekið fram hver kaupandinn er en sjóðurinn var stærsti hluthafinn í N1. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×