50-60 starfsmönnum Marel sagt upp í Hollandi Stefán Árni Pálsson skrifar 11. júní 2014 10:21 Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marel. Visir/Anton
Marel kynnti í dag fyrir starfsmönnum sínum í Oss í Hollandi fyrirhugaða endurskipulagningu og flutning á starfsemi félagsins þar til Boxmeer, sem er ein af lykilstarfsstöðvum Marel hvað varðar nýsköpun og framleiðslu. Þetta hefur það í för með sér að 50-60 starfsmönnum verður sagt upp hjá Marel í Hollandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Markmiðið með þessum fyrirhuguðu breytingum ku vera samþætting í rekstri starfseininganna, að styðja við bætta markaðsstöðu með því að auka nýtingu á starfskröftum í nýsköpun og framleiðslu og lækkun á kostnaði. Aðgerðir þessar munu hafa í för með sér kostnað og ávinning í samræmi við simpler, smarter and faster áætlun félagsins um skýrari rekstraráherslur, sem kynnt var í byrjun ársins og gengur samkvæmt áætlun eftir því sem segir í tilkynningunni. Viðræður eru hafnar við starfsmannaráð og verkalýðsfélög á staðnum um fyrirhugaða endurskipulagningu og flutning á starfseminni og er stefnt að því að ljúka þeim aðgerðum fyrir lok þessa árs, með fyrirvara um árangur framangreindra viðræðna. Mun þetta hafa í för með sér fækkun á 50-60 starfsgildum. Marel, starfsmannaráð og verkalýðsfélögin munu vinna að samkomulagi vegna þessa og leggja drög að áætlun til að styðja við þá starfsmenn sem aðgerðirnar hafa áhrif á. Starfsemi félagsins í Oss, sem telur 140 starfsmenn, er einkum bundin við kjötiðnað og framleiðslu auk þess að hýsa sölu- og þjónustuskrifstofu þess fyrir Holland, Belgíu og Luxemborg. Fjarlægðin milli Oss og Boxmeer er 40 kílómetrar.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira