Viðskipti innlent

Gjaldeyrisviðskipti tryggingafélaga brjóti gegn lögum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Seðlabankinn telur að gjaldeyrisviðskipti þriggja íslenskra tryggingamiðlara sem selja þjónustu erlendra tryggingafélaga hér á landi brjóti gegn lögum um gjaldeyrismál.
Seðlabankinn telur að gjaldeyrisviðskipti þriggja íslenskra tryggingamiðlara sem selja þjónustu erlendra tryggingafélaga hér á landi brjóti gegn lögum um gjaldeyrismál. Vísir/Pjetur
Fjármagnsflutningar á fjórða tug þúsunda Íslendinga í tengslum við sparnað hjá erlendum tryggingafélögum verða stöðvaðir og verður þeim gert skylt að spara í íslenskum krónum á Íslandi í staðinn. Seðlabankinn telur að gjaldeyrisviðskipti þriggja íslenskra tryggingamiðlara sem selja þjónustu erlendra tryggingafélaga hér á landi brjóti gegn lögum um gjaldeyrismál.

Félögin sem um ræðir eru Allianz á Ísland, Sparnaður og Tryggingamiðlun Íslands og hyggst Seðlabankinn stöðva gjaldeyrisviðskipti og fjármagnshreyfingar í erlendum gjaldeyri vegna iðgjaldagreiðslna á grundvelli samninga um viðbótartryggingavernd, sparnað, söfnunartryggingar og eingreiðslulíftryggingar að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Í frétt sem Seðlabankinn sendi frá sér á ellefta tímanum í morgun kemur fram að bankinn hafi haft til skoðunar um nokkra hríð hvort samningar erlendra tryggingafélaga sem boðnir hafa verið til sölu hér á landi séu í samræmi við lög og reglur um gjaldeyrismál. Þegar gjaldeyrishöftunum var komið á með breytingu á lögum um um gjaldeyrismál í lok nóvember 2008 voru ekki settar takmarkanir á vöru og þjónustuviðskipti en hins vegar lagt bann við greiðslum vegna samninga sem fela í sér söfnun eða sparnað erlendis.

Í frétt Seðlabankans kemur fram að mörkin þarna á milli séu hins vegar í raun ekki alltaf skýr, t.d. þegar sami samningur felur í sér bæði vátryggingar og sparnað. Það ásamt því að Seðlabankinn taldi nauðsynlegt að skilningur annarra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á þessum mörkum væri sá sami og bankans, skýrir meðal annars af hverju bankinn greip ekki til ráðstafana fyrr.

Talið er að rúmlega þrjátíu þúsund einstaklingar séu með slíka samninga hér á landi. Til þess að gæta að hagsmunum þessara einstaklinga verður þeim gert kleiftað viðhalda samningssambandi sínu við erlendu tryggingafélögin í stað þess að stöðva greiðslur alveg. Í því felst að samningarnir verða í íslenskum krónum og söfnun sparnaðar mun hér eftir eiga sér stað á Íslandi. Verður íslenskum umboðsaðilum þessara tryggingafélaga veitt fjögurra mánaða aðlögunartímabil til að ná þessu markmiði.

Verulega mun draga úr útstreymi fjármagns frá landinu samhliða því að gjaldeyrisviðskipti erlendu tryggingafélaganna verða stöðvuð. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins áætlar Seðlabankinn að frá setningu fjármagnshafta í lok nóvember 2008 til maí 2014 þá hafi heildarútflæði vegna sparnaðarleiða tryggingafélaganna numið tæplega 40 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×