Viðskipti innlent

Óttar Snædal til Samtaka atvinnulífsins

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Óttar Snædal er nýr hagfræðingur á efnahagssviði SA.
Óttar Snædal er nýr hagfræðingur á efnahagssviði SA. Mynd/Samtök atvinnulífsins
Óttar Snædal hefur verið ráðinn til Samtaka atvinnulífsins. Hann mun starfa sem hagfræðingur á efnahagssviði samtakanna.

Efnahagssviðið hefur faglegt sjálfstæði innan SA, en meginverkefni þess er að annast rannsóknir og greiningar á íslensku efnahagslífi.

Óttar er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í fjármála­ og þróunarhagfræði frá Barcelona Graduate School of Economics.

Síðustu ár hefur Óttar starfað sem ráðgjafi á sviði fjármála og hagfræði hjá Capacent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×