Viðskipti innlent

Delta Air Lines flýgur daglega milli Íslands og New York

Randver Kári Randversson skrifar
Delta Air Lines mun fljúga daglega milli Íslands og New York í sumar.
Delta Air Lines mun fljúga daglega milli Íslands og New York í sumar. Mynd/Delta
Delta Air Lines mun fljúga daglega milli Íslands og New York í sumar. Fyrsta ferð ársins verður fimmtudaginn 5. júní. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Delta.

Um er að ræða verulega fjölgun ferða frá því í fyrra, en þá var flogið ýmist fimm eða sex daga vikunnar. 

„Því er spáð að ferðamönnum frá Bandaríkjunum til Íslands fjölgi um 30% á þessu ári og Delta er að bregðast við þessum vaxandi áhuga með því að fjölga flugferðum,“ segir Perry Cantarutti, forstjóri Delta í Evrópu.

Flogið verður með 167 sæta Boeing 757-200 þotu félagsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×