Samningur um ívilnanir til risagróðurhúss nærri Grindavík liggur fyrir Haraldur Guðmundsson skrifar 5. júní 2014 08:34 Heildartekjur Grindavíkurbæjar vegna uppbyggingar Esbro gætu orðið um 60 milljónir króna á ári. Mynd/Oddgeir Karlsson
Fjárfestingarsamningur á milli stjórnvalda og hollenska fyrirtækisins Esbro um ívilnanir vegna risagróðurhússins sem rísa á nálægt Grindavík liggur fyrir. Samningurinn verður ekki undirritaður fyrr en forsvarsmenn Esbro ganga endanlega frá fjármögnun verkefnisins og öðrum lausum endum. Þetta staðfestir Kristján Eysteinsson, starfsmaður Esbro og umsjónarmaður verkefnisins hér á landi. Hann segir fjármögnun miða ágætlega og að það muni skýrast á næstu vikum hvort og þá hvenær framkvæmdir hefjist. „Það er verið að vinna í fjármögnun verkefnisins með aðilum sem koma að þessu sem hluthafar og með lánastofnunum og ýmsum öðrum,“ segir Kristján. Esbro leiðir fjármögnun gróðurhússins. Kristján segir ekki tímabært að gefa upp hvaða fjárfestar séu þegar komnir að verkefninu. Þar sé um að ræða bæði innlenda og erlenda aðila. Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í haust en þær áttu upphaflega að fara í gang snemma á þessu ári. „Þetta hefur tekið lengri tíma en menn ætluðu eins og gerist oft í stórum verkefnum sem þessu. Það er mín skoðun að áætlanir varðandi fjármögnun og undirbúning hafi verið of brattar. Menn voru einfaldlega of bjartsýnir á að geta klárað þetta á skemmri tíma en raun ber vitni,“ segir Kristján. Hann bendir á að önnur stór fjárfestingarverkefni í Helguvík og á Bakka við Húsavík hafi tekið lengri tíma en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Hollenska fyrirtækið vill reisa tvö gróðurhús og þjónustubyggingu undir framleiðslu á tómötum til útflutnings. Byggingarnar yrðu staðsettar í Mölvík, um tíu kílómetra fyrir utan Grindavík, og samtals um 150 þúsund fermetrar að stærð. Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um 35 til 40 milljónir evra eða um 5,4 til 6,2 milljarðar króna. Drög að samningi um kaup á 35-40 megavöttum af raforku við HS Orku liggja fyrir. „Það vill svo til að þetta land er mjög gott og því þarf ekki að fara í mikla jarðvinnu. Engu að síður þarf að setja allt út fyrir húsinu en það mun koma síðan í gámum og verður sett saman á staðnum, stál, ál og gler.“ Ef fjárfestingarsamningurinn verður undirritaður mun fyrirtækið fá afslátt af ýmsum opinberum sköttum og gjöldum og meðal annars greiða lægri fasteignaskatt til Grindavíkur. Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir bæinn hafa gengið frá öllum skipulagsmálum í mars. „Boltinn er núna hjá fyrirtækinu. Okkar hlutverk er að ganga frá skipulaginu og við erum í viðræðum við ríkið, sem er landeigandinn, um leigu eða kaup á lóðinni undir húsið.“
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira