Viðskipti innlent

Forstjóraskipti hjá Elkem Ísland

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einar Þorsteinsson mun nú  stýra starfsemi Elkem Foundry í Asíu.
Einar Þorsteinsson mun nú stýra starfsemi Elkem Foundry í Asíu.
Einar Þorsteinsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Elkem Ísland sl. 6 ár, hefur verið ráðinn til þess að stýra starfsemi Elkem Foundry í Asíu en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Elkem.

Elkem Foundry hefur sett stefnuna á að styrkja stöðu sína á hratt vaxandi mörkuðum í Asíu á næstu árum og er Einari ætlað að leggja sitt af mörkum til þess verkefnis.

Við starfi hans tekur Gestur Pétursson, umhverfis- og öryggisstjóri Elkem Ísland, sem jafnframt hefur verið staðgengill Einars og náinn samstarfsmaður um margra ára skeið.

Elkem A/S er einn af helstu framleiðendum kísilmálms í heiminum. Hjá félaginu starfa um 2.300 manns í verksmiðjum þess í í Evrópu, Ameríku, Afríku og Asíu. Elkem A/S er í eigu China National Bluestar, sem keypti félagið árið 2011.

„Það er mikil áskorun fólgin í þessu nýja starfi og þetta tækifæri er ánægjuleg viðurkenning á þeim árangri sem náðst hefur hér á Grundartanga á undanförnum árum,“ segir Einar Þorsteinsson.

Einar segir að þar eigi allir starfsmenn Elkem Ísland sinn þátt.

„Hópurinn hefur verið afar samhentur og metnaðarfullur og það hafa verið mikil forréttindi að vinna með þessu góða fólki í mörgum krefjandi verkefnum sem tekist hefur verið á við á undanförnum árum.“

„Við erum öll stolt af því trausti sem Einari er sýnt og óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi. Ég hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Hér er einvala lið sem kann vel til verka og faglegur metnaður Elkem A/S, jafnt á sviði gæðamála og umhverfissjónarmiða, er okkur öllum dagleg hvatning til dáða,“ segir Gestur Pétursson.

Forstjóraskiptin hjá Elkem Ísland munu eiga sér stað þann 1. ágúst næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×