Hægt að borga í strætó með símanum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 6. júní 2014 19:30 Kolbeinn segir þjónustuna vera til þess að auðvelda notendum að nýta þjónustuna.
Strætó bs. hefur ákveðið að innleiða nýtt greiðslukerfi sem gerir farþegum kleift að greiða fargjaldið í gegnum smáforrit í snjallsímanum sínum. Verður forritið bæði aðgengilegt android og iPhone notendum. „Við höfum verið að huga að þessu um nokkra hríð og verið að skoða hvaða leiðir séu bestar,“ sagði Kolbeinn Óttarson Proppé, upplýsingafulltrúi Strætó. Sérstakt teymi var myndað til þess að vinna að þróuninni og segir Kolbeinn að sérstaklega hafi verið litið til snjallsíma þar sem að nánast hver einasti maður eigi nú slíkt tæki. „Þetta er kerfi sem kallast upp á ensku mobile ticketing. Það mun auðvelda viðskiptavinum okkar að nýta þjónustuna. Þá losnar fólk við klinkið.“ „Við förum á næstu vikum í notendaprófanir. Vinnan gengur vel og það er allt á áætlun.“ Kolbeinn segist vonast til þess að hægt verði að taka kerfið í gagnið strax á þessu ári. Fyrsta útgáfan af kerfinu verður einföld og auðveld í notkun. Munu viðskiptavinir fyrst um sinn aðeins geta keypt einstaklingsfargjald á höfuðborgarsvæðinu í gegnum smáforrit sem sótt er í símann. „Þú kaupir stakt fargjald með greiðslukorti og svo geturðu pantað fleiri en einn miða og geymt í appinu.“ Kolbeinn segir síðan áframhaldandi þróun forritsins vera stefnuna. Unnið verður að því að hægt verði að kaupa áskriftarkort seinna meir en fyrst um sinn sé stefnan aðeins að koma forritinu út til notenda.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira