Viðskipti innlent

Kanadískur ferðalangur búinn að læra orðið "verkfall“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Farþegar í Leifsstöð í dag.
Farþegar í Leifsstöð í dag. Vísir/KTD
Icelandair hefur þurft að aflýsa síðdegisflugum sínum til New York og Vancouver í dag vegna manneklu. Í morgun varð röskun á flugi til Glasgow og sömuleiðis var flug frá Seattle fellt niður. 

Starfsmenn Icelandair unnu að því að aðstoða erlenda farþega þegar blaðamann Vísis bar að garði í Leifsstöð í dag. Tvær kanadískar konur, sem dvalið höfðu á Íslandi í nokkra daga, voru yfirvegaðir þrátt fyrir breytinguna á ferðalagi sínu. Starfsfólk Icelandair hafði komið þeim fyrir í flugi til London þar sem þær munu gista í nótt. Þaðan halda þær svo til Vancouver á morgun.

Önnur konan sagðist reyndar myndu missa af tengiflugi sínu í Vancouver vegna breytinganna og var óviss um hvort hún þyrfti sjálf að greiða fyrir nýtt flug af þeim sökum. Aðspurð hvort konurnar vissu hvers vegna flug þeirra til Vancouver hefði verið fellt niður svaraði önnur: „I think there's a strike or something“. Áður en blaðamaður náði að staðfesta grun hennar svaraði hin á íslensku: „Verkfall“.

Starfsmaður í innritun í Leifsstöð sagði blaðamanni að allt hefði gengið að óskum í dag. Aðspurð um fréttir af því að starfsmenn hefðu verið grýttir af óánægðum ferðalöngum sagði hún það hafa farið framhjá sér og kollegum sínum.

Starfsfólk í veitingasölu sagði blaðamanni að lund ferðalanga undanfarnar vikur hefði verið fín, eins og ekkert hefði í skorist, þrátt fyrir verkfallsaðgerðir starfsfólks Isavia og nú flugmanna og flugfreyja Icelandair.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×