Ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum Haraldur Guðmundsson skrifar 21. maí 2014 09:03 Í spá bankans er gengið út frá því að niðurstöður kjarasamninga sem gerðir voru fyrir áramót muni gilda fyrir meginhluta vinnumarkaðarins. Vísir/GVA
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í sex prósentum. Í tilkynningu nefndarinnar um ákvörðunina segir að hagvöxtur á þessu ári verði 3,7 prósent, eða um einu prósenti meiri en í síðustu þjóðhagsspá Seðlabankans. „Spáð er enn meiri hagvexti á næsta ári. Batinn á vinnumarkaði heldur einnig áfram. Þróttmikill vöxtur leiðir til þess að slakinn hverfur fyrr úr þjóðarbúskapnum en áður var gert ráð fyrir og framleiðsluspenna myndast sem nær hámarki árið 2016. Þá vekur það áhyggjur að því er spáð að þjóðhagslegur sparnaður minnki nokkuð og viðskiptaafgangur snúist í halla undir lok spátímabilsins," segir í tilkynningu nefndarinnar. Verðbólga hefur verið við markmið síðustu mánuði og nefndin spáir að svo verði fram á næsta ár. Þá muni hún aukast vegna framleiðsluspennu. „Verðbólguvæntingar til skamms tíma hafa lækkað að undanförnu í takt við hjöðnun verðbólgu en verðbólguvæntingar til langs tíma eru enn nokkuð yfir markmiði. Í spá bankans er gengið út frá því að niðurstöður kjarasamninga sem gerðir voru fyrir áramót muni gilda fyrir meginhluta vinnumarkaðarins og að gerðir verði kjarasamningar á svipuðum nótum til lengri tíma á fyrri hluta næsta árs. Nokkurs óróa gætir þó á vinnumarkaði sem veldur óvissu um launaþróun. Hjöðnun verðbólgu og verðbólguvæntinga felur í sér að raunvextir bankans hafa hækkað þó nokkuð það sem af er þessu ári. Slakinn í taumhaldi peningastefnunnar er því líklega horfinn. Óvissa er um hverjir séu jafnvægisvextir Seðlabankans, en líklegt er að aukinn vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum muni að öðru óbreyttu krefjast þess að raunvextir Seðlabankans hækki frekar. Þörfin fyrir aukið peningalegt aðhald yrði þó minni eftir því sem aðgerðir sem leggjast á sveif með peningastefnunni eru meiri, þ.á m. aðhaldssöm stefna í ríkisfjármálum. Það myndi einnig stuðla að auknum þjóðhagslegum sparnaði og hagstæðari viðskiptajöfnuði. Peningastefnan hefur náð árangri að undanförnu. Verðbólga hefur hjaðnað að markmiði og slakinn í þjóðarbúskapnum er að hverfa. Sveiflur í verðbólgu og hagvexti hafa einnig minnkað. Langtímaverðbólguvæntingar eru þó enn nokkuð yfir markmiði sem skapar óvissu um varanleika þessa árangurs. Það fer eftir framvindu verðbólgu og verðbólguvæntinga hvort tilefni verður til að breyta nafnvöxtum bankans á næstunni."
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Sjá meira