Viðskipti innlent

Ísland sagt nálægt því að bjóða kröfuhöfum til viðræðna

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Kristinn
Íslensk stjórnvöld eru sögð nálægt því að bjóða kröfuhöfum föllnu bankanna til viðræðna í fyrsta sinn. Fréttamiðillinn Bloomberg hefur þetta eftir tveimur einstaklingum sem til málsins þekkja, en vilja ekki koma fram undir nafni.

Frétt Bloomberg má sjá hér.

Þá segir að viðræðurnar gætu hafist í næsta mánuði, en þær yrðu fyrstu viðræður á milli stjórnvalda og kröfuhafa föllnu bankanna. Stjórnvöld geti nú lagt fram hvernig samkomulag gæti veitt kröfuhöfunum undanþágu gagnvart gjaldeyrishöftunum.

Meðal annars feli mögulegt samkomulag í sér að kröfuhafar yrðu eigendur í eignarhaldsfélögum sem haldi utan um eignir föllnu bankanna.

Síðastliðinn sunnudag kallaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, eftir raunhæfum tillögum að nauðasamningum í fréttum Stöðvar 2.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lét þau orð falla á Alþingi nýverið, að varasamt væri fyrir stjórnvöld að veita undanþágu frá gjaldeyrishöftum um háar fjárhæðir fyrir einn aðila og skapa þannig fordæmi sem þau gætu ekki staðið við í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×