Hætta að framleiða Fresca Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 21. maí 2014 14:39 Vífilfell segir um tvær vikur þar til Fresca hverfi alveg úr hillum verslana. Vísir/Vilhelm
Vífilfell hefur ákveðið að hætta framleiðslu á gosdrykknum Fresca. Sala á drykknum hefur dregist saman undanfarin ár og er hlutdeild Fresca á gosdrykkjamarkaðnum nú aðeins 0,2 prósent. Er það því mat fyrirtækisins að ekki borgi sig að halda framleiðslunni áfram að því er segir í tilkynningu. „Fresca var bylting þegar hann kom á markað. Þetta var fyrir tíma bæði TAB og Diet Coke og það er athyglisvert að sykurlaus gosdrykkur á þessum árum var fyrst og fremst vara fyrir sykursjúka. Í dag eru sykurlausir gosdrykkir og ýmsir vatnsdrykkir mun fyrirferðameiri í hillunum. Við vitum auðvitað að það verða einhverjir svekktir en þeir geta frestað vonbrigðunum aðeins með því að birgja sig vel upp en við eigum von á að það taki allt að tvær vikur áður en Fresca klárast í verslunum. Svo getum við bent þeim á að prófa Sprite Zero eða aðra drykki sem komið hafa í staðinn,“ segir Jón Viðar Stefánsson markaðsstjóri gosdrykkja hjá Vífilfelli í tilkynningu. Fresca er einn elsti sykurlausi drykkurinn á markaðnum en hann hefur verið framleiddur síðan árið 1968. Lengi vel var Fresca eini gosdrykkurinn í boði fyrir fólk sem hvorki gat né vildi drekka sykrað gos en framboð sykurlausra gosdrykkja er nú mjög mikið og Fresca á ekki jafn mikið upp á pallborðið og áður. Fresca hefur verið í hægri hnignun í ríflega tvo áratugi. Um aldamótin var reynt að rífa hann upp með stórri auglýsingaherferð, sem margir muna eflaust eftir, og tvöfaldaðist salan þá tímabundið. Síðan þá hefur neysla drykkjarins minnkað ár frá ári.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira