Viðskipti innlent

Launamunur kynjanna hefur aukist

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Anton
Óleiðréttur launamunur kynjanna var 19,9 prósent í fyrra, samkvæmt Hagstofu Íslands. Hafði munurinn því aukist um 1,8 prósent frá 2012, þegar hann var 18,1 prósent.

Á almennum vinnumarkaði var munurinn 19,9 prósent. Hjá opinberum starfsmönnum var hann 15,0 prósent, en hjá ríkinu var munurinn 16,2 prósent en 5,6 prósent hjá sveitarfélögum.

Lítill launamunur hjá sveitarfélögunum skýrist þá helst af lítilli dreifingu launa og hátt hlutfall kvenna, en þær eru um 75 prósent starfsmanna sveitarfélaga.

Mestur launamunur er í fjármála og vátryggingastarfsemi eða 37,1 prósent og minnstur er munurinn í heilbrigðis- og félagsþjónustu, eða 9,1 prósent.



Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands





Fleiri fréttir

Sjá meira


×