Viðskipti innlent

Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands verðlaunuð

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjórai hjúkrunar á Heilsustofnun og Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri
Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjórai hjúkrunar á Heilsustofnun og Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri
Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði hefur hlotið nýsköpunarverðlaun Heilsulindarsamtaka Evrópu (ESPA) fyrir þróun á heilsuþjónustu fyrir almenning.

Verðlaunin voru veitt í Vejle í Danmörku síðastliðinn fimmtudag.

ESPA (European Spas Association) eru samtök heilsulinda og heilsumiðstöðva í Evrópu sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni. Aðalfundur samtakanna fór fram í Vejle í Danmörkun dagana 21. og 22. maí.

Á aðalfundinum voru veitt verðlaun fyrir nýsköpun í sex flokkum. Heilsustofnun vann í flokknum Innovation Medical Spa fyrir þróun á heilsuþjónustu fyrir almenning.

Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsstofnun segir verðlaunin mikilvæga viðurkenningu á starfi Heilsustofnunnar. „Og hvatning til að halda áfram á sömu braut,“ bætir hún við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×