Viðskipti innlent

Sjö sagt upp hjá MP banka

Randver Kári Randversson skrifar
Sjö létu af störfum hjá MP banka í gær.
Sjö létu af störfum hjá MP banka í gær. Vísir/Valli
Í gær létu sjö starfsmenn MP banka af störfum en þeim var sagt upp vegna sameiningar sviða og einföldunar á skipulagi reksturs bankans. Þetta kemur fram á vef MP banka.

Ennfremur segir að bankinn hafi farið í fjölbreyttar aðgerðir sem meðal annars hafa falið í sér að MP banki seldi rekstur Lykils, eignaleigu bankans og lokaði útibúi sínu í Borgartúni. Störfum í bankanum hafi fækkað vegna þessara aðgerða og því hafi þurft að grípa til uppsagna starfsfólks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×