Viðskipti innlent

86 milljóna króna tap hjá N1 á fyrsta ársfjórðungi

Randver Kári Randversson skrifar
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1.
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1. Vísir/Valli
86 milljóna króna tap varð á rekstri N1 á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samanborið við 22 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Rekstur félagsins var undir áætlun á fyrsta ársfjórðungi sem skýrist að mestu vegna minni umsvifa í sjávarútvegi og á einstaklingsmarkaði. Selt magn af eldsneyti til sjávarútvegs var 14,5% minna en á fyrsta ársfjórðungi 2013. 

Eiginfjárhlutfall var 49,6% eftir 1.650 milljóna króna arðgreiðslu sem samþykkt var á aðalfundi 27. mars síðastliðinn og greidd út til hluthafa 28. apríl. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×