Viðskipti innlent

Margrét Stefánsdóttir ráðin markaðs- og kynningarstjóri Bláa lónsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ráðin markaðs- og kynningarstjóri Bláa lónsins.
Ráðin markaðs- og kynningarstjóri Bláa lónsins. Vísir/Bláa lónið
Margrét Stefánsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Bláa lónsins en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Margrét hóf störf á markaðssviði fyrirtækisins í byrjun árs. Hún hefur víðtæka reynslu af markaðs- og kynningarmálum, bæði sem upplýsingafulltrúi Skipta og Símans og sem stjórnandi kynningarmála hjá Símanum.

Hún hefur einnig starfað við markaðsráðgjöf og almannatengsl hjá GSP Samskiptum ásamt því að starfa sem fréttakona á Stöð 2 og Bylgjunni.

Þá hefur Margrét komið að rekstri Íslandsfunda, fjölskyldufyrirtækis í ferðaþjónustu.

Hún lauk B.ed námi frá Kennaraháskóla Íslands og diplómanámi frá Háskóla Íslands í fjölmiðlun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×