Viðskipti innlent

Minna veitt af fiski

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/valli
Fiskafli íslenskra skipa dróst saman um 18,8 prósent á föstu verði í apríl 2014 samanborið við apríl mánuð í fyrra. Þetta kemur á vefsíðu Hagstofunnar.

Í tonnum talið dróst afli saman um 6,5 prósent sem skýrist af samdrætti í nær öllum helstu tegundunum. Þá minnkaði botnfiskafli um 13 prósent í apríl á þessu ári miðað við apríl í fyrra. Uppsjávarafli var álíka í apríl í ár og í sama mánuði 2013, þrátt fyrir enga loðnuveiði, síldveiði og samdrátt í makrílveiðum. Veiði á kolmunna stóð í stað en annar uppsjávarfiskur hefur veiðst betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×