Viðskipti innlent

Fasteignaverð hækkaði langmest í Vestmannaeyjum

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Í Vestmannaeyjum hækkaði fasteignaverð um rúmlega 65 prósent.
Í Vestmannaeyjum hækkaði fasteignaverð um rúmlega 65 prósent. VÍSIR/ÓSKAR
Fasteignaverð hækkaði mest í Vestamannaeyjum frá árinu 2008 til ársins 2013. Þar hækkaði fasteignaverð um rúmlega 65 prósent. Þetta kemur fram í Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans.

Fasteignaverð á Ísafirði kemur þar á eftir en hækkunin var um 35 prósent. Á sama tíma lækkaði fasteignaverð í Reykjanesbæ og í Árborg. Í Árborg um 10,2 prósent og í Reykjanesbæ um 4,7 prósent. Prósentu munur á breytingu fasteignaverð í þessum bæjum er því um 70 prósent á þessu fimm ára tímabili.

Fasteignaverð á Akureyri hækkaði með áþekkum hætti og á höfuðborgarsvæðinu á þessu tímabili. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×